Í viðtali við danska blaðið Børsen segir Hannes Smárason, forstjóra FL Group, ekki líta á Finnair sem samkeppnisaðila lággjaldafélaganna heldur meira sem félag svipað Icelandair, sem þjónar ákveðnum markaði. Hann telur einnig Icelandair og Finnair eiga ágætlega saman því Finnair þjóni Asíu vel en Icelandair sé sterkara á flugleiðum til Bandaríkjanna.

Að sögn Hannesar hefur FL Group jafnframt áhuga á því að skoða Finnair nánar ef til þess kemur að finnska ríkið hyggist losa um meirihluta eignarhald sitt á félaginu.

Vitnað er til umfjöllunarinnar í Hálffimm fréttum KB banka.

Børsen segir Hannes Smárason nú í fyrsta skipta greina frá hugsanlegum áætlunum um framtíð Sterling, en hann segir meðal annars að til greina komi að selja félagið til Easyjet eða stofna til náins samstarfs milli félaganna tveggja. Hannes segir skandinavíska markaðinn góðan kost fyrir lággjaldaflugfélög og sameinuð myndu Sterling og Easyjet verða stærri en Ryanair og þar með stærsta lággjaldafélag Evrópu.

Að sögn Hannesar hefur FL Group jafnframt áhuga á því að skoða Finnair nánar ef til þess kemur að finnska ríkið hyggist losa um meirihluta eignarhald sitt á félaginu.