Gengi hlutabréfa Icelandair Group féll um 2,03% í rúmlega 245 milljóna króna viðskiptum á annars rólegum degi í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa félagsins hefur verið á hraðri uppleið síðustu vikurnar og stendur það nú í 11,6 krónum á hlut. Þetta var mesta lækkun dagsins.

Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa Marel um 0,63%, Vodafone um 0,29% og Regins jafn mikið.

Engin hækkun var á hlutabréfamarkaðnum í dag.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,47% og endaði hún í 1.229,97 stigum. Heildarveltan nam 483,5 milljónum króna.