Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar féll um 2,87% í fremur lítilli veltu í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,73%, Haga um 0,33% og Icelandair Group um 0,15%

Þá hækkaði gengi bréfa TM um 1,5%, VÍS um 1,08%, Eimskips um 1%, Regins um 0,97% og Marel um 0,75%

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,31% og endaði hún í 1.123 stigum.