Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum þann 16. október var tilkynnt um útgáfu LBANK CB 17, sem er flokkur sértryggðra skuldabréfa, óverðtryggð til þriggja ára, að fjárhæð 200 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 6,3%. Í tilkynningunni kom jafnframt fram að stefnt væri að töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. október.

Samkvæmt nýrri fréttatilkynningu bankans mun þetta ekki ganga eftir og er töku skuldabréfaflokksins til viðskipta frestað. Gerir bankinn ráð fyrir því að flokkurinn verið tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland í síðasta lagi þann 15. desember næstkomandi.