Kröfuhafar Glitnis fá frest til 15. október til að ákveða sig með Íslandsbanka

Fjármálaráðuneytið hefur samþykkt beiðni skilanefndar Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, um frest til 15. október nk. til að taka endanlega ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Glitnis að Íslandsbanka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en samkvæmt samningum milli ríkisins og skilanefndarinnar, sem undirritaðir voru 13. september s.l., var kveðið á um að skilanefnd Glitnis hefði frest til 30. september til að ákveða hvort Glitnir eignist 95% hlutafjár í Íslandsbanka eða fái greiðslu í  formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka.

Nýverið hefur Íslandsbanki lagt fram nauðsynlegar upplýsingar um rekstur og fjárhagsstöðu bankans, en skilanefndin vill fá ráðrúm til að fara nánar yfir þær upplýsingar og bera undir kröfuhafa áður en endanleg ákvörðun er tekin.

Fjármálaráðuneytið hefur jafnframt ákveðið að veita ekki frekari frest í málinu þar sem talið er að nægilegar fjárhagslegar upplýsingar liggi nú fyrir.