Í niðurlagi fréttar í Viðskiptablaðinu í dag um málshöfðun auglýsingastofunnar Fíton á hendur Íslandsstofu var rangt farið með. Þar var fullyrt að frestur til að skila inn tilboðum í útboði sem fer fram vegna framlengingar á verkefninu „Ísland allt árið“ hefði runnið út þann 10. júní. Það er ekki rétt. Fresturinn stendur til 14. ágúst næstkomandi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.