Bresk samkeppnisyfirvöld sögðu frá því í gær að þeir fjárfestingarsjóðir sem hafa lýst yfir áhuga á að yfirtaka smásölufyrirtækið Sainsbury, verði að taka ákvörðun um hvort af yfirtökunni verði fyrir 13. apríl næstkomandi. Fjárfestingarsjóðirnir eru fjórir talsins; CVC Capital, Kohlberg Kravis Roberts & Co og Blackstone Group International. Allir samþykktu þeir - og einnig ráðgjafar Sainsbury - úrskurð samkeppnisyfirvaldanna.