Sýslumaðurinn á Suðurlandi segir að frestur ríkisins til að nota forkaupsrétt sinn að jörðinni Felli við Jökulsárlón hafi ekki verið runninn út og að gengið verði frá kaupum ríkisins á næstu dögum.

Eins og Viðskiptablaðið hefur áður greint frá sagði í frétt Fréttablaðsins að kaupin á Jökulsárlóni hafi ekki gengið eftir vegna rangra upplýsinga um frest. Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður á Suðurlandi, vísar því hins vegar á bug í viðtali við Mbl.is.

Þar er haft eftir henni að fresturinn telst ekki frá fyrr en kominn er bindandi kaupsamningur. Og þá fyrst getur ríkissjóður tekið afstöðu til kaupanna, segir Anna.

Sýslumaðurinn á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu þar sem að kom meðal annars fram að bindandi kauptilboð hafi ekki komist á fyrr en 11. nóvember þegar kauptilboðið var samþykkt. „Gengið verður frá kaupunum sölu Fells til Ríkissjóðs á næstu dögum,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Hér er hægt að sjá tilkynninguna í heild sinni:

Það er meginregla að forkaupsréttur verði ekki virkur fyrr en bindandi samningur kemst á milli eiganda forkaupsréttarandlags og kaupanda. Í lagalegum skilningi er litið svo á að bindandi samningur kemst ekki á fyrr en tilboð er samþykkt sem í þessu tilviki var 11. nóvember 2016. Samkvæmt gildandi rétti þarf jafnframt í forkaupsréttartilboði að greina nákvæmlega frá samningsskilmálum, sem bera með sér að vera bindandi og afdráttarlausir. Forkaupsréttartilboð það sem sent var forkaupsréttarhafa þann 7. nóvember bar ekki með sér hina endanlegu kaupsamningsskilmála, þeir urðu ekki ljósir fyrr en við samþykkt tilboðsins þann 11. nóvember 2016. Ríkissjóði sem forkaupsréttarhafa var tilkynnt um frest til að neyta lögbundins forkaupsréttar síns þann 7. nóvember 2016, með bréfi embættisins sýslumannsins á Suðurlandi þar sem fram kom að frestur til að taka afstöðu til réttarins rynni út þann 10. janúar 2017, 60 dögum eftir að boðið var samþykkt og forkaupsrétturinn virkjaðist.

Afstaða embættis sýslumannsins á Suðurlandi er sú að þar sem ekki komst á bindandi kaupsamningur milli sýslumannsins á Suðurlandi f.h. landeiganda Fells og kaupanda fyrr en 11. nóvember 2016, þegar kauptilboðið var samþykkt með endanlegum samningsskilmálum, getur forkaupsréttartilboð, þar sem ekki er greint frá endanlegum og bindandi skilmálum kaupsamnings, ekki haft réttaráhrif sem slíkt fyrr en í fyrsta lagi á þeim degi sem endanlegt kauptilboð var samþykkt.

Þá bera skilmálar kaupsamningsins, sem kaupandi undirritaði, með sér að frestur forkaupsréttarhafa, Ríkissjóðs, rynni út þann 10. janúar 2017 og var því ekki mótmælt af hálfu hans og mátti því vera  fyllilega ljóst frá 11. nóvember 2016 að miðað yrði við þá dagsetningu. Verður því að miða við að forkaupsréttartilboðið hafi fyrst haft réttaráhrif þann 11. nóvember 2016 og því sé yfirlýsing Ríkissjóðs um nýtingu forkaupsréttarins, sem barst þann 9. janúar sl., komin fram innan lögbundins frests.