Slitabú Landsbankans og Landsbankinn komust að samkomulagi um að framlengja aftur fresti vegna gildisskilyrða í samningi um breytingar á skilmálum skuldabréfa Landsbankans í dag. Fresturinn nær nú til 17. nóvember. Mbl.is greinir frá þessu .

Slitabúið hefur sent Seðlabankanum fjórar beiðnir um undanþágur um heimild til að greiða hlutagreiðslur til forgangskröfuhafa í búið að jafnvirði um 402 milljarða króna. Seðlabankinn hefur ekki getað svarað erindinu.