Árvakur hf. og 365 hf. hafa undirritað samning um að sameina Fréttablaðið og Pósthúsið Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu.

Þar kemur fram að Árvakur greiðir fyrir með útgáfu nýs hlutafjár og yfirtöku skulda. Þar með kemur 365 inn í hluthafahóp Árvakurs.

„Þessi samningur er gerður í ljósi erfiðleika í blaðaútgáfu vegna harkalegs samdráttar á auglýsingamarkaði og mikilla hækkana á pappírsverði,“ segir í tilkynningunni.

Í dag verður útgáfa 24 stunda sameinuð Morgunblaðinu en fram kemur í tilkynningunni að með þessu og öðrum breytingum sem taka gildi á næstu vikum og misserum næst fram mikil kostnaðarhagræðing á dagblaðamarkaði.

Haft er eftir Einari Sigurðssyni, forstjóra Árvakurs, að á sama tíma og fyrirtækin fari þessa leið til að hagræða í rekstri leggi þau mikla áherslu á að tryggja áfram ritstjórnarlegt sjálfstæði miðlanna.

„Þegar við sameinum 24 stundir Morgunblaðsrekstrinum stóreflum við Morgunblaðið með nýrri, kraftmeiri og ferskari helgarútgáfu blaðsins, sem verður kynnt um aðra helgi,“ segir Einar í tilkynningunni.

Ari Edwald, forstjóri 365, segir að ekki verði breytingar á starfsemi Fréttablaðsins vegna kaupanna.

„Hins vegar erum við auðvitað alltaf að leita leiða til hagræðingar í rekstrinum og því verður haldið áfram.“

Stefnt að því að breikka eigendahópinn

Þessi kaup eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafunda í félögunum og með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þar voru fyrirætlanir um kaupin kynntar fyrir nokkru og á næstu dögum verða einstakir þættir málsins skýrðir nánar.

Hluthafar Árvakurs fyrir kaupin voru félög í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Valtýr ehf., Lyfjablóm ehf. og Garðar Gíslason ehf.

Við kaupin kemur 365 hf. inn í hluthafahópinn og verður 36,5% hluthafi í Árvakri. Þór Sigfússon er áfram stjórnarformaður Árvakurs og Einar Sigurðsson forstjóri félagsins.

Þá kemur fram að félagið hefur sett sér markmið um að breikka eigendahópinn þegar aðstæður á markaði gefa tilefni til.

Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs hf., segir að þessi sameining væri mikilvægt skref til að tryggja áfram öfluga dagblaðaútgáfu við mjög erfiðar rekstraraðstæður á fjölmiðlamarkaði.

„Fjölmiðlar, sem byggja rekstur sinn að verulegu leyti á auglýsingum, finna einna fyrst og sárast fyrir samdrætti í mikilvægum greinum í hagkerfinu,“ segir Einar í tilkynningunni.

Einar segir að félögin tvö, sem að þessu standa, gerðu sér góða grein fyrir mikilvægi þess að tryggja áfram ritstjórnarlegt sjálfstæði blaðanna.

„Við leggjum áherslu á að þjóna markaðnum, lesendum og auglýsendum, með ólíkum blöðum. En jafnframt er afar mikilvægt að við náum að framleiða þessi blöð með hámarks samnýtingu á dýrum framleiðsluþáttum. Þar skipta prentun og dreifing mestu, en það eru tækifæri til hagræðingar með samnýtingu fjölda annarra rekstrarliða.“

Ari Edwald, forstjóri 365, sagði að kaupin væru mikilvægt skref í að laga fjölmiðlarekstur að þeim aðstæðum sem væru á markaðnum.

„365 mun áfram taka þátt í blaðaútgáfu í gegnum þátttöku sína í Árvakri og jafnframt styrkir þessi breyting 365 og gerir því fært að þjóna neytendum enn betur á öðrum sviðum fjölmiðlunar þar sem einkafyrirtæki glíma við mjög ósanngjörn samkeppnisskilyrði og ríkisstyrktan keppinaut,“ segir Ari í tilkynningunni.

Að lokum kemur fram að ráðgjafi Árvakurs í þessum viðskiptum var Straumur fjárfestingarbanki og ráðgjafi 365 var Glitnir banki.