Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni sem leið eða um 20%. Þannig nam veltan alls 983 milljónum króna samanborið við 1.223 milljónir í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar á ný milli vikna eftir að hafa hækkaði í síðustu viku og er nú um 1.060 milljónir króna samanborið við 1.115 milljónir í síðustu viku.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið að stíga upp á við frá áramótum, þ.e. á milli ára, en fer þó lækkandi aftur um miðjan maí.

Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta lækkaði í 5 af síðustu sex vikum.

Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 45% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði hún minnkað um 74% milli ára.

Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu en hún hefur dregist saman síðustu sjö vikur og um 37% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði hún dregist saman um 72%.

Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l. Það að 12 vikna meðalvelta hafi dregist saman um tæp 80% í janúar sýnir á ákveðinn hátt hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur minnkað á rúmu hálfu öðru ári.

Alls var 33 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð nær meðaltali, en 42 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning er á svipuðu róli og í síðustu viku, nemur nú 29,8 milljónum króna á hvern samning en var í síðustu viku 28 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,6 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 68%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.