Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð í vikunni, eða um 20% milli vikna, en hafði í vikunni á undan dregist saman um 17% milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.485 milljónum króna samkvæmt gögnum frá Fasteignaskrá Íslands. Í vikunni á undan nam veltan tæpum 1.240 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar nú þriðju vikuna í röð og nemur nú um 1.375 milljónum króna. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í lok maí en í ágúst var fjögurra vikna meðalveltan undir milljarði króna þrjár vikur í röð. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,6 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 52% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 56% milli ára sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Tólf vikna meðalvelta hækkar örlítið á milli vikna, fimmtu vikuna í röð, nú um 22 milljónir króna, og nemur nú 1.167 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 53% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 63% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 61%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.1226 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 20 vikur, samanborið við 3.380 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 64% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 57 kaupsamningum þinglýst í vikunni, sem er nokkuð yfir meðallagi en 47 samningum var þinglýst í vikunni þar á undan. Alls hefur 36 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári. Til gamans má geta að aldrei hefur jafn mörgum samningum verið þinglýst í einni viku og nú.

Meðalupphæð á hvern samning breytist þó lítið á milli vikna, nam 26 milljónum króna í vikunni, samanborið við 26,3 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,6 milljónir króna.