Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst töluvert í síðustu viku, eða um 48% milli vikna.

Þannig nam veltan í síðustu viku tæpum 1,3 milljarði en það er í fyrsta skipti í fimm vikur sem vikuveltan fyrir yfir milljarð samkvæmt gögnum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar nú í fyrsta skipti í fimm vikur en síðustu fjórar vikur hefur hún lækkað jafnt og þétt. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú tæpum 970 milljónum króna en var í vikunni þar á undan tæpar 885 milljónir, og hafði þá ekki verið lægri frá því í lok janúar. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 50% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 65% milli ára sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Tólf vikna meðalvelta hækkar örlítið á milli vikna, aðra vikuna í röð, en þó aðeins um 7 milljónir króna, og nemur nú 1.087 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 48% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 68% milli ára. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um 80% um miðjan janúar s.l.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 45%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.322 milljónir króna, samanborið við 3.607 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 63% milli ára. Á sama tíma í fyrra hafði hún lækkað um 30% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 47 kaupsamningum þinglýst í vikunni en 30 samningum þar á undan. Alls hefur 35 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði lítillega milli vikna, nam 27,4 milljónum króna samanborið við 28 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,7 milljónir króna.