Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega í vikunni, eða um 4% milli vikna en hafði í síðust viku dregist saman um 5% milli vikna.

Þannig nam veltan í þessari viku 868 milljónum króna samanborið við 832 milljónir króna í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands. Veltan í þessari viku var því svipuð og hún var fyrir tveimur vikum.

Þetta er nú fjórða vikan í röð þar sem vikuveltan er undir milljarði. Þá er fjögurra vikna meðalvelta nú 884 milljónir króna og hefur ekki verið lægri frá því í lok janúar. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 53% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 67% milli ára sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Tólf vikna meðalvelta hækkar örlítið á milli vikna, þó aðeins um 3 milljónir króna, og nemur nú 1.080 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 47% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 59% milli ára. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um 80% um miðjan janúar s.l.

Ársbreyting á vikuveltu nemur nú 54%. Velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.342 milljónir króna, samanborið við 3.657 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 63% milli ára. Á sama tíma í fyrra hafði hún lækkað um 29% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 31 kaupsamningi þinglýst í vikunni en 33 samningum þar á undan. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar hækkar um tæpar 3 milljónir milli vikna og nam í vikunni 28 milljónum króna, samanborið við 25,2 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,8 milljónir króna.