Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í vikunni, eða um 5% milli vikna en hafði í síðust viku dregist saman um 9% milli vikna. Þannig nam veltan aðeins 832 milljónum króna samanborið við 876 milljónir króna í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.

Þetta er nú þriðja vikan í röð þar sem vikuveltan er undir milljarði en þá er fjögurra vikna meðalvelta einnig komin undir milljarð og nemur nú 977 milljónum króna.

Þetta er í fyrsta skipti frá því um miðjan febrúar sem fjögurra vikna meðalvelta fer undir milljarð en mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 49% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 66% sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu sem lækkar nú milli vikna, fjórðu vikuna í röð.

12 vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 48% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 68% milli ára. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um 80% um miðjan janúar s.l.

Alls var 33 kaupsamningum þinglýst í vikunni, líkt og í síðustu viku. Alls hefur 35 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar lítillega milli vikna og nemur nú um 25 milljónum króna á hvern samning en var í vikunni á undan 26,6 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33 milljónir króna.