Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst verulega saman í vikunni, eða um 23% milli vikna. Þannig nam veltan aðeins 960 milljónum króna samanborið við 1.240 milljónir króna í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.
Fjögurra vikna meðalvelta lækkar nú lítillega milli vikna, eftir að hafa hækkað s.l. þrjár vikur á undan, en hún er þó sú sama og hún var fyrir tveimur vikum, 1.235 milljónir króna. Í síðustu viku náði fjögurra vikna meðalvelta tveggja mánaða hámarki en mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.
Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 50% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 65% sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.
Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu sem lækkar nú milli vikna, aðra vikuna í röð, eftir að hafa hækkað s.l. tvær vikur þar á undan.
12 vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 43% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 70% milli ára. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um 80% um miðjan janúar s.l.
Alls var 37 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð nálægt meðaltali en í síðustu viku á undan var 46 samningum þinglýst. Alls hefur 35 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.
Meðalupphæð á hvern samning lækkar milli vikna, aðra vikuna í röð, og nemur nú tæpum 26 milljónum króna á hvern samning en var í vikunni þar á undan 27 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,5 milljónir króna.