Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman í vikunni, eða um 20% milli vikna, en rétt er þó að hafa í huga að vikuna á undan hafði veltan aukist um 20% milli vikna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.190 milljónum króna samkvæmt gögnum frá Fasteignaskrá Íslands. Í vikunni á undan nam veltan 1.485 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar nú í fyrsta skipti í fjórar viku og nemur nú 1.351 milljónum króna. Í síðustu viku hafði fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í lok maí en í ágúst var fjögurra vikna meðalveltan undir milljarði króna þrjár vikur í röð. Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,6 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan maí.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 52% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 62% milli ára sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Tólf vikna meðalvelta hækkar þó á milli vikna, sjöttu vikuna í röð, nú um 17 milljónir króna, og nemur nú 1.184 milljónum króna. Tólf vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 51% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 64% milli ára.

Ársbreyting á vikuveltu hefur dregist saman 44%. Rétt er þó að hafa í huga að velta á fasteignamarkaði getur sveiflast nokkuð milli vikna og því er réttara að skoða fleiri vikur saman líkt og gert er hér að ofan.

Til gamans má þó skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.208 milljónir króna, og hefur lækkað jafnt og þétt s.l. 21 viku, samanborið við 3.250 milljónir króna á sama tíma í fyrra og hefur því lækkað um 63% milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 45 kaupsamningum þinglýst í vikunni, sem er nokkuð yfir meðallagi en 57 samningum var þinglýst í vikunni þar á undan. Alls hefur 36 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári. Til gamans má geta að aldrei á árinu hefur jafn mörgum samningum verið þinglýst í einni viku og í síðustu viku.

Meðalupphæð á hvern samning breytist þó lítið á milli vikna, þriðju vikuna í röð, og nam 26,4 milljónum króna í vikunni, samanborið við 26 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 32,5 milljónir króna.