Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst verulega milli vikna í síðustu viku eða um 53%. Þannig nam veltan alls 1.507 milljónum króna samanborið við 983 milljónir í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar lítillega milli vikna eftir að hafa lækkað í vikunni þar á undan og er nú um 1.160 milljónir króna samanborið við 1.060 milljónir í síðustu viku.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 47% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 72% sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta lækkaði í 5 af síðustu 7 vikum.

Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu sem hafði, fyrir síðustu viku, dregist saman sjö næstu vikur þar á undan. Vegna mikillar veltu í síðustu viku eykst 12 vikna meðalvelta nú um tæpar 60 milljónir króna á milli vikna en hefur engu að síður dregist saman um 34% milli ára.

Á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 73%. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l.

Alls var 42 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku en 33 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar nokkuð milli vikna og nam í síðustu viku 35,9 milljónum króna en var í vikunni þar á undan 29,8 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,7 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 36%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.