Frá því að samdrátturinn í efnahagslífinu í Bandaríkjunum hófst í desember 2007 hafa 5,7 milljónir manna misst vinnuna eða 8,9% vinnuaflsins. Á sama tíma hefur vinnandi fólki yfir 55 ára aldri fjölgað um 800.000.
Margt fólk, sem var hætt að vinna og hugðist lifa góðu lífi af eignum sínum og sparnaði það sem eftir var ævinnar, hefur orðið að endurskipuleggja líf sitt eftir hrunið á fasteigna- og verðbréfamörkuðum. Þetta fólk hefur leitað fyrir sér á vinnumarkaðinum og sumt fengið vinnu þótt heildaratvinnuleysi hafi farið stigvaxandi.
Frá þessu segir í Financial Times. Þar er tekið dæmi af sextugri konu, Evu Coffey, sem ásamt eiginmanni sínum á tvö hús í heimaborg sinni, Springfield í Virginíu. Húsin hafa nú fallið í verði úr 450.000 dollurum (56 millj. ISK) hvort um sig í 275.000 dollara (34 millj. ISK) fyrir bæði til samans. Þá hefur sparnaður þeirra í sjóðum minnkað um helming. Eva Coffey, sem ætlaði að hafa það náðugt á eftirlaunaárunum og sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir skólann í hverfinu, sá sig knúna til að fara út á vinnumarkaðinn á ný og ekur nú skólabíl.
Eldra fólki hefur gengið miserfiðlega að verða sér úti um vinnu. Í þeim greinum þar sem sárlega vantar fólk eins og til dæmis í störf hjúkrunarfræðinga hefur leiðin oft verið greið. Fólk sem ekki er með neina eftirsótta kunnáttu eða starfsreynslu verður að láta sér nægja illa launuð störf í búðu, hótelum og veitingahúsum, ef einhverja vinnu er yfirleitt að hafa.