Embætti sérstaks saksóknara yfirheyrði sjö einstaklinga og framkvæmdi húsleit á  þremur stöðum í gær í tengslum við rannsókn á ýmsum ætluðum lögbrotum sem áttu sér stað innan Landsbankans fyrir bankahrun. Á meðal þeirra sem hafa verið yfirheyrðir er Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans.

Á meðal þeirra mála sem eru til rannsóknar eru kaup á hlutabréfum í Landsbankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna Landsbankans og lánveitingar til þeirra félaga. Viðskiptablaðið fjallaði ítarlega um þessi félög í fréttaskýringu í maí 2009. Hún verður endurbirt í þremur hlutum á vef blaðsins í dag. Þetta er þriðji hluti.

Framandi félög látin kaupa mikið magn af bréfum í Landsbankanum

Átta aflandsfélög í eigu Landsbankans, sem stofnuð voru utan um kauprétti starfsmanna, voru látin kaupa alls 13,2% hlut í bankanum sem gerðu þau samanlagt að næststærsta eiganda hans. Öll félögin lutu stjórn æðstu stjórnenda Landsbankans án þess að smærri hluthafar, fjárfestar eða eftirlitsaðilar hefðu hugmynd um það, enda var þess aldrei getið í ársskýrslum né tilkynnt um það á markaði. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Stærst aflandsfélaganna var Empennage Inc. sem skráð var í Panama. Félagið var fjármagnað af Kaupþingi og nam heildarskuld þess við bankann við bankahrun um 7,9 milljörðum króna. Einu eignir félagsins sem keyptar voru fyrir lánin voru hlutabréf í Landsbankanum.

Þegar bankahrunið stóð sem hæst, þann 1. október 2008, var lán Kaupþings til Empennage framlengt. Í skýrslu rannsóknarnefndar segir að "01.10.2008 eru lánin [til Empennage] framlengd einhliða af Bjarka Diego frá gjalddaga 05.08.2008 með nýjum gjalddaga 15.10.2008 þar sem vöxtum af láni ISK 6,8 ma., ISK 1.077.130.069 er bætt við. Samtals ISK 7.887.130.069 án allra pappíra eða heimilda lánanefnda, samkvæmt fyrirskipun Bjarka Diego." Þann 7. júní 2009 voru lánin enn í vanskilum í bókum Kaupþings.

Í skýrslunni segir að þarna hafi vaknað "sú spurning hvort eiginfjárhlutfall bankans hafi hækkað án raunverulegs eiginfjárframlags".