Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu lítillega saman í vikunni eða um 13% milli vikna. Þannig nam veltan 1.275 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Fjögurra vikna meðalvelta er nú tæpir 1,6 milljarðar króna og hefur nú aukist um 1% milli ára. Þetta er í fyrsta skipti frá því fyrir jól árið 2007 sem fjögurra vikna meðalvelta eykst milli ára en rétt er að hafa í huga að á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 76% milli ára.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið á ná jafnvægi síðustu vikur. Í byrjun mars á síðasta ári fór velta á fasteignamarkaði að dragast og það útskýrir að mestum hluta minnkandi sveiflur milli ára.

Alls var 43 kaupsamningum þinglýst í vikunni en 44 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 33 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar á milli vikna, nemur 29,7 milljónum króna á hvern samning, sem er nálægt meðaltali, en var 33 milljónir í vikunni þar á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú rétt tæpar 35 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 14%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.