Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman í vikunni eða um 34% milli vikna. Þannig nam veltan 837 milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins) en nam í síðustu viku 1.275 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú rúmir 1,4 milljarðar króna, minnkar nokkuð milli vikna eða um 150 milljónir króna og hefur nú dregist saman um 17% milli ára. Í síðustu viku hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 1% sem var í fyrsta frá því fyrir jól árið 2007 sem fjögurra vikna meðalvelta eykst milli ára en rétt er að hafa í huga að á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 76% milli ára.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið á ná jafnvægi síðustu vikur. Í byrjun mars á síðasta ári fór velta á fasteignamarkaði að dragast og það útskýrir að mestum hluta minnkandi sveiflur milli ára.

Til að fá enn eina samanburðarmyndina hefur 12 vikna meðalvelta nú dregist saman um 37% og verið á því róli síðustu 3 vikur en mest hafði hún þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l. Það að 12 vikna meðalvelta hafi dregist saman um tæp 80% í janúar sýnir enn hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur minnkað á hálfu öðru ári.

Alls var 26 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð undir meðaltali, en 43 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 33 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lítillega á milli vikna, nemur 32,2 milljónum króna á hvern samning, sem er nálægt meðaltali, en var 29,7 milljónir í vikunni þar á undan. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú tæpar 35 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 63%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.