Traust almennings til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, hefur dalað verulega frá því að hún varð forsætisráðherra.

Þetta sýnir ný könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum.

Tæp 17% aðspurðra segjast treysta Jóhönnu „frekar eða mjög mikið“ en rúmlega 60% aðspurðra segjast treysta Jóhönnu „frekar eða mjög lítið“. Frá því að MMR birti fyrstu könnun sína á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum hefur traustfylgi við Jóhönnu aldrei mælst minna. Að sama skapi hefur vantraust til Jóhönnu aldrei mælst meira en nú.

Traust almennings til Jóhönnu Sigurðardóttur, frá des. 2008.
Traust almennings til Jóhönnu Sigurðardóttur, frá des. 2008.
© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróunina á trausti til Jóhönnu frá því í desember 2008. Þar sést hvernig þeim hefur fækkað sem segjast treysta Jóhönnu, úr tæpl. 64% í 17% nú. Í desember 2008 voru aðeins tæp 14% sem sögðust vantreysta Jóhönnu en eru nú sem fyrr segir rúm 60%.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun á trausti til Jóhönnu flokkað eftir stuðningi almennings við stjórnmálaflokka. Þar sést hvernig traust til Jóhönnu hefur dalað í öllum flokkum, meira að segja meðal hennar eigin flokksmanna. Í desember 2008 sögðust 83% stuðningsmanna Samfylkingarinnar treysta Jóhönnu en nú segjast tæp 73% treysta henni.

Traust almennings til Jóhönnu Sigurðardóttur, flokkað eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, frá des. 2008.
Traust almennings til Jóhönnu Sigurðardóttur, flokkað eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, frá des. 2008.
© vb.is (vb.is)

Mest hefur traustið minnkað meðal sjálfstæðismanna. Í desember 2008, þegar Jóhanna var félagsmálaráðherra í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, sögðust 64% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins treysta Jóhönnu. Í dag segjast aðeins 2,2% sjálfstæðismanna treysta Jóhönnu. Fylgið er ekki mikið meira á meðal framsóknarmanna en 3,6% þeirra segjast treysta Jóhönnu í dag.

Mesta er sveiflan þó á traustfylgi Jóhönnu meðal stuðningsmanna Vinstri grænna (VG). Í desember 2008 sögðust 65% stuðningsmanna VG treysta Jóhönnu. Þeim fjölgaði nokkuð í febrúar 2009, þegar Jóhanna varð forsætisráðherra í ríkisstjórn með VG, en þá sögðust 86% stuðningsmanna VG treysta Jóhönnu. Það traust hefur lækkað þó dalað nokkuð hratt þegar liðið hefur á ríkisstjórnarsamstarfið og var komið niður í 45% í maí 2010. Nú segjast um 50% stuðningsmanna VG treysta Jóhönnu.