Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst saman í vikunni eða um 5% milli vikna. Þannig nam veltan 931 milljón samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins) en nam í síðustu viku 1.208 milljónum króna.

Þetta er í fyrsta skipti í þrjár vikur sem veltan fer undir milljarð króna en þar á undan hafði hún ekki farið undir milljarð í fjórar vikur samfleytt.

Fjögurra vikna meðalvelta lækkar nú fjórðu vikuna í röð og er nú rétt rúmur 1 milljarður króna, minnkar um tæpar 100 milljónir króna milla og hefur þannig dregist saman um 36% milli ára.

Um miðjan maí hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 1% sem var í fyrsta frá því fyrir jól árið 2007 sem fjögurra vikna meðalvelta eykst milli ára. Rétt er þó að hafa í huga að á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 75% milli ára en það gefur góða mynd af því hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman s.l. 18 mánuði eða rúmlega það.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést hvernig fjögurra vikna meðalveltan hefur verið að stíga upp á við frá áramótum, þ.e. á milli ára, en fer þó lækkandi aftur um miðjan maí.

Til að fá enn eina samanburðarmyndina hefur 12 vikna meðalvelta nú dregist saman um 31% en mest hafði hún þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l. Það að 12 vikna meðalvelta hafi dregist saman um tæp 80% í janúar sýnir enn hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur minnkað á hálfu öðru ári.

Alls var 33 kaupsamningum þinglýst í vikunni sem er nokkuð yfir meðaltali, en 39 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Alls hefur 34 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning er sú sama og í síðustu viku, nemur 28,2 milljónum króna á hvern samning,  og hefur verið á því róli síðustu þrjár vikur. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 34 milljónir króna.

Á ársgrundvelli hefur vikuvelta á fasteignamarkaði dregist saman um 5%. Sem fyrr segir þá segir það ekki alla söguna þar sem fasteignasala getur sveiflast nokkuð milli vikna. Því er nær að líta til fjögurra vikna meðalveltu sem fjallað var um hér að ofan.