Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, og 365 miðlar hafa undirritað samning um kaup Fjarskipta á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins. Kaupverð er á bilinu 3.125-3.275 milljónir króna. Hinar keytpu eignir eru meðal annars fjarskipta-, sjónvarps- og útvarpsrekstur 365 miðla auk vefmiðlisins Vísis.

Fréttastofa 365 miðla, að undanskilinni ritstjórn og rekstri Fréttablaðsins, er hluti hins keypta. Helsta breytingin frá því sem áður hefur verið tilkynnt er að Vísir og fréttahluti ljósvakamiðla eru nú hluti af kaupunum sem hækkar kaupverð frá áður tilkynntum forsendum.

Velta sameinaðs félags mun nema um 22 milljörðum króna og skila um 5 milljörðum króna í EBITDA þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram.

„Kaupverð er á bilinu 3.125-3.275 milljónir króna og mun endanlegt kaupverð ráðast af rekstrarárangri hins keypta fram að afhendingu. Kaupverð verður greitt annars vegar með 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum á genginu 52,5 krónur á hlut, og hins vegar 1.425-1.575 milljónum króna með reiðufé. Einnig yfirtekur kaupandi vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 4.600 milljónir króna,“ segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.