Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu breyttist lítið milli vikna í vikunni sem leið en veltan jókst um 1% milli vikna. Þannig nam veltan alls 1.241 milljón samanborið við 1.231 milljónir króna í vikunni áður samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar þó milli vikna, þriðju vikuna í röð, og er nú um 1.240 milljónir króna. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri síðan í lok maí en mest hefur fjögurra vikna meðalvelta verið tæpir 1,3 milljarðar á þessu ári en það var um miðjan apríl.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér til hliðar. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú lækkað um 54% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 65% sem ætti að gefa lesendum nokkra hugmynd um það hversu mikið velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman á s.l. tveimur árum.

Til að fá enn heildstæðari samanburð á veltu á fasteignamarkaði er hægt að skoða 12 vikna meðalveltu sem lækkar nú milli vikna eftir að hafa hækkað s.l. tvær vikur þar á undan.

12 vikna meðalvelta hefur þó dregist saman um 37% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 71% milli ára. Mest hafði 12 vikna meðalvelta þó dregist saman um tæp 80% um miðjan janúar s.l.

Alls var 46 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku sem er talsvert meira en í vikunni þar á undan þegar 30 samningum var þinglýst. Alls hefur 35 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lækkar þó töluvert á milli vikna og nam í síðustu viku 27 milljón króna en var í vikunni þar á undan rúmar 40 milljónir króna. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,7 milljónir króna.