Það eru ekki aðeins Norðmenn sem sækjast eftir íslenskum starfskröftum því Færeyingar eru einnig farnir að auglýsa eftir starfskröftum hér. Á starfsmannamiðluninni Job.is er nú verið að auglýsa laus störf hjá verktakafyrirtækinu Landsverki.

Landsverk er eitt stærsta fyrirtæki Færeyja, með 176 starfsmenn. Óskað er eftir arkitektum eða byggingaverkfræðingum í tvær stöður.