Lögþing Færeyja samþykkti rétt í þessu lög sem heimila landsstjórn Færeyja að veita Íslandi lán upp á um 300 milljónir danskra króna eða því sem samsvarar um sex milljörðum íslenskra króna.

Lögin voru samþykkt einróma og án umræðu til að sýna samhug þingsins.

Upphæðin verður tekin úr Landsbanka Færeyja sem er ígildi seðlabanka landsins.