Freyja Dögg Frímannsdóttir er nýr svæðisstjóri RÚVAK. Þetta kemur fram i fréttatilkynningu frá RÚV. Freyja mun verksýra og bera ábyrgð á fréttaflutningi af landsbyggðinni í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum. RÚV tilkynnti nýlega að aukin áhersla yrði lögð á starfsemi á landsbyggðinni á næstu misserum. Unnið er að endurskipulagningu, þróun og uppbyggingu RÚV til framtíðar á landsbyggðinni.

Freyja Dögg starfaði áður sem fréttamaður hjá RÚV á Akureyri og hefur reynslu af verkefnastjórnun og vinnslu fyrir vef. Hún er hefur lokið meistaragráðu í upplýsingatæknifræði.