Framtakssjóðurinn Freyja, sem rekinn er af Kviku eignastýringu, hefur keypt rúmlega 15% eignarhlut í Matorku ehf. og verður í kjölfar viðskiptanna þriðji stærsti hluthafi félagsins. Fulltrúi Freyju mun taka sæti í stjórn félagsins og taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Ekki er greint frá kaupverðinu í fréttatilkynningunni.

Matorka er fiskeldisfyrirtæki sem elur allan sinn fisk í stórum eldiskerjum á landi. Aðal áhersla félagsins er eldi á íslenskri bleikju en einnig framleiðir fyrirtækið regnbogasilung. Matorka hefur byggt upp stórar eldiseiningar við Grindavík og selur í dag bleikju og regnbogasilung til Evrópu og Norður-Ameríku.

„Við sjáum mikil tækifæri í fjárfestingu Freyju í Matorku en fiskeldi hefur meira en fjórfaldast á síðustu 10 árum á Íslandi samhliða sívaxandi neyslu almennings á fiski. Styrkleikar Matorku felast einkum í umhverfisvænni framleiðslu, sterku stjórnendateymi með mikla reynslu af fiskeldi, öflugum eigendahópi og nægu landrými fyrir framtíðarvöxt. Fjárfestingin fellur enn fremur einkar vel að áherslum sjóðsins á ábyrgar fjárfestingar en félagið er leiðandi í sjálfbæru og umhverfisvænu fiskeldi,“ segir Margit Robertet , framkvæmdastjóri Freyju.

Á síðasta ári framleiddi Matorka um 1.000 tonn af eldisfiski og hefur reksturinn skilað jákvæðri EBITDA framlegð frá árinu 2019. Tekjur félagsins hafa 18-faldast á síðastliðnum fimm árum eða frá því að framleiðsla hófst í nýrri eldisstöð við Grindavík.

„Það er í senn styrkur og viðurkenning fyrir teymið okkar í Matorku að fá Freyju inn í hluthafahópinn. Við höfum stækkað landeldisframleiðslugetu okkar úr 50 tonnum í 3.000 tonn á einungis fimm árum og höldum nú ótrauð áfram. Við stefnum á að fullnýta framleiðsluleyfi okkar innan fimm ára sem myndi u.þ.b. tífalda núverandi framleiðslu. Að baki félaginu býr áratuga reynsla stjórnenda fyrirtækisins og frumkvöðla þess í uppbyggingu landeldis og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þá þekkingu, sem og öflugt sölustarf, vekja áhuga hjá sterkum innlendum fagfjárfestum,“ segir Bjarni K. Þorvarðarson , stjórnarformaður Matorku.

Matorka hefur í dag starfsleyfi sem leyfir félaginu að margfalda framleiðslu sína í núverandi starfsstöð auk þess sem fyrirliggjandi fjárfesting í kerjum og öðrum framleiðslubúnaði leyfir félaginu að þrefalda núverandi framleiðslu á næstu tveimur árum.

„Með súrnun sjávar og ört vaxandi plastmengun í heimshöfunum, þá eru vestrænir neytendur í síauknum mæli að leita að sjálfbærri sjávarfangsframleiðslu. Matorka nýtir sér einstakar náttúruaðstæður á Íslandi til þess að framleiða eftirsótta og afar bragðgóða hágæða vöru án þess að skaða umhverfið eða sjávarlífríkið,“ segir Árni Páll Einarsson , forstjóri Matorku