Veitingastaðurinn Friday´s í Smáralind var á dögunum valinn besti Fridays staðurinn í Evrópu annað árið í röð þegar horft er til þjónustu, matar og starfsfólks. Ævar Olsen var einnig valinnn besti framkvæmdastjóri Friday´s í Evrópu.

Fram kemur í tilkynningu frá Friday's að yfir fjögur hundruð veitingastaðir eru í Evrópu og sé þetta í fyrsta skiptið sem sami veitingastaðurinn og framkvæmdastjórinn hljóta þessa eftirsóttu viðurkenningu tvö ár í röð.

Haft er eftir Ævari að þetta komi ekki svo mikið á óvart en skemmtilegt sé að fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf.