Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur friðlýst sal Nasa við Austurvöll að frumkvæði Minjastofnunnar sem vildi friðlýsa salinn. Þetta kemur fram í frétt RÚV um málið.

Í friðlýsingunni kemur fram að hún taki til innviða, rýmisskipunar og varðveittra hluta af upprunalegum innréttingum salarins. Óvíst er hvaða áhrif friðlýsingin hefur að öðru leyti þar sem hún tekur ekki til ytra byrðis hússins.

Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV um málið hefur friðlýsingin engin áhrif á áform þeirra sem hyggjast byggja hótel á svæðinu.