Friðrik Friðriksson lögfræðingur hefur verið ráðinn til starfa hjá HB Granda. Friðrik mun sinna mannauðsmálum hjá félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vefsíðu HB Granda.

„Ráðning hans er til marks um aukna áherslu félagsins á málaflokkinn,“ segir í tilkynningunni. Friðrik hefur undanfarin 10 ár starfað sem lögfræðingur SFS og meðal annars komið að gerð kjarasamninga. Samkomulag er á milli SFS og HB Granda um vistaskiptin og mun Friðrik skipta um starfsvettvang eigi síðar en 1. júlí næstkomandi, að því er kemur fram í frétt HB Granda.