Friðrik Þór Snorrason verður forstjóri sameinaðs fyrirtækis Reiknistofu bankanna og Terir eftir samruna fyrirtækjanna.

Nýtt skipulag hefur verið innleitt en þar mun Þorsteinn Björnsson vera yfir viðskiptaþróun og ráðgjöf, Hanna María Jónsdóttir yfir fjármálum og rekstri, Einar Birkir Einarsson yfir tæknirekstri og þjónustu, Guðjón Steingrímsson yfir hugbúnaðarþróun, Sigurður Örn Gunnarsson yfir þjónustustjórn og gæðamálum og Jóna Jakobsdóttir yfir skrifstofu hins sameinaða fyrirtækis.