Friðgeir Magni Baldursson tók við starfi útibússtjóra Landsbankans í Keflavík nú um áramótin. Friðgeir, sem var útibússtjóri á Selfossi, hefur unnið hjá Landsbankanum frá því að hann lauk námi sem rekstrarhagfræðingur frá Háskólanum í Stokkhólmi árið 1990. Áður var hann svæðisstjóri yfir Suðurnesjum, Suðurlandi og Hafnarfirði í þrjú ár fram í nóvember í fyrra. Einnig var hann útibússtjóri í Grindavík í tvö ár frá 1996 til 1998.

Friðgeir er kvæntur Björgu Pétursdóttur og eiga þau fimm börn, 8 til 29 ára.