„Það er ekki auðvelt að samræma svo vel sé stóran vinnustað sem hefur opið 364 daga ársins, nánast allan sólarhringinn við öfluga fjölskyldustefnu. Það er því mikill heiður að hljóta viðurkenningu sem þessa,“ segir Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar í Keflavík. Fríhöfnin fékk í gær, ásamt fimm öðrum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir að vera fjölskylduvænt fyrirtæki í Reykjanesbæ. Þar á meðal var Isavia, móðurfélag Fríhafnarinnar. Það voru starfsmenn á fjölskyldusviði Reykjanesbæjar og Árni Sigfússon bæjarstjóri sem afhentu forsvarsmönnum Fríhafnarinnar viðurkenninguna.  Þetta er önnur viðurkenningin sem Fríhöfnin fær í mánuðinum en Starfsmenntaverðlaun SAF voru veittar um síðustu mánaðamót fyrir öflugt menntastarf innan  fyrirtækisins.

Ásta Dís bendir á það í tilkynningu að meirihluti starfsmanna Fríhafnarinnar er í vaktavinnu og því séu þau afar stolt af þessari tilnefningu, en hún kemur frá starfsmönnunum sjálfum og þarf meirihluti starfsmanna að skrifa undir hana.

Í tilkynningunni segir enn fremur að hjá félaginu er í gildi jafnréttisáætlun. Í henni er sérstaklega fjallað um samræmingu fjölskyldu- og vinnu og hvernig skuli tryggja forsendur fyrir slíku jafnvægi, sérstaklega þar sem hátt hlutfall starfsmanna er í vaktavinnu. Því getur oft reynst erfitt að bjóða upp á sveigjanlegan vinnutíma en í boði eru eru hlutastörf þar sem starfsmenn geta unnið fyrir hádegi og eftir hádegi. Einnig er öllum konum sem koma tilbaka úr fæðingarorlofi  gefin kostur á að vinna á kvöldin í allt að tvö ár.  Karlmennirnir hafa kost á því að taka feðraorlof en verslunarstjóri Fríhafnarinnar er einmitt í feðraorlofi um þessar mundir.

Vill að fólki líði vel í vinnunni

„Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og að það hlakki til að mæta til hennar.   Hver vill vakna á milli fjögur og fimm á næturnar til mæta til vinnu. Þetta er erfiður tími en það er gaman að heyra frá viðskiptavinum sem eru að koma til okkar kannski upp úr kl 5.30 á morgnanna að þeirra bíði brosandi starfsfólk í Fríhöfninni sem tekur vel á móti þeim.  Starfsfólkið kann vel að meta sveigjanleikann sem fylgir slíkri vaktavinnu, annars væri starfsaldurinn ekki svona hár hjá fyrirtækinu en þeir sem hafa unnið lengst eru komnir yfir 40 árin og eiga nóg eftir,“ segir Ásta.

Hún segir að telja megi upp margir sem geri Fríhöfnina að frábærum vinnustað. Þar er hvatt til heilsuræktar og veittur styrkur til þess. Starfsfólk og fjöskyldur þeirra hefur aðgang að heilbrigðisstarfsfólki, þar er starfræktur Fríhafnarskóli, máltíðir eru niðurgreiddar, veittur skóstyrkur, bónuskerfi, akstur til og frá vinnu og svo mætti lengi telja.