Verðlaunasjóður iðnaðarins veitir Friðriki Sigurðssyni, stofnanda og forstjóra TM Software, viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf á sviði upplýsingatækniiðnaðar á Iðnþingi, aðalfundi Samtaka iðnaðarins, klukkan 12 í dag.

Verðlaunasjóður iðnaðarins veitir Friðriki viðurkenningu fyrir að hafa skapað umtalsverð verðmæti sem byggjast á þekkingu og þróunarstarfi. Iðnþingið fer fram í Versölum að Hallveigarstíg 1, Reykjavík.