Eurobandið, sem Friðrik Ómar Hjörleifsson og Regína Ósk Óskarsdóttir skipa, komst áfram í lokakeppni Eurovision nú í kvöld.

10 þjóðir komust áfram á þessu síðara undanúrslitakvöldi keppninnar, en þær eru auk Íslands; Króatía, Georgía, Úkraína, Albanía, Lettland, Tyrkland, Portúgal, Danmörk og Svíþjóð.

Þar með komust öll Norðurlöndin áfram og keppa til úrslita á laugardaginn.