Eldra fólk á Seltjarnarnesi nýtur ókeypis aðgengis að Sundlaug Seltjarnanes á grundvelli fjölskyldustefnu bæjarins. Fjölmargir eldri Seltirningar hafa nýtt sér þennan kost til heilsuræktar auk sundleikfiminnar sem jafnframt er eldra fólki að kostnaðarlausu. Vaxandi eftirspurn virðist vera eftir þjónustunni eftir metnaðarfullar breytingar á sundlauginni en framkvæmdir við hana og nýopnaða heilsurækt World Class fela í sér möguleika til aukinna lífsgæða fyrir bæjarbúa.

Í kjölfar opnunar heilsuræktar World Class á Seltjarnarnesi mun opnunartími Sundlaugar Seltjarnarness lengjast en náin samvinna verður um þjónustu stöðvarinnar og Sundlaugar Seltjarnarness. Breyttur opnunartími sundlaugarinnar er því sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga: kl. 06:30 – 22:00

Laugardaga og sunnudaga: kl. 08:00-20:00