Frjálsi lifeyrissjóðurinn sem rekin er að Kaupþing banka hefur greitt út 1,7 milljarða króna bónus til sjóðsfélaga. sem er hæsta bónusgreiðsla sem lífeyrissjóðurinn hefur greitt út nokkru sinni.Bónusgreiðslan nú kemur i kjölfar sterkrar tryggingafræðilegrar stöðu. Rúmlega 20.000 sjóðfélagar fengu greiddan bónus og nam meðalfjárhæðin um 87.000 krónum á hvern sjóðfélaga.

Bónusgreiðslurnar voru greiddar úr samtryggingadeild sjóðsins í frjálsa séreign til þeirra sjóðfélaga sem áttu réttindi í samtryggingadeildinni 31. desember 2005. Séreignin er laus til útborgunar eftir 60 ára aldur og greiðist út með jöfnum greiðslum til 67 ára aldurs eða lengur eftir ósk sjóðfélaga.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn var stofnaður árið 1978 og er því að ljúka 28. starfsári sínu. Stærð sjóðsins er um 57 milljarðar króna