Þingflokkur Frjálslynda flokksins segir að stýrivaxtahækkun stuðli að fjöldaatvinnuleysi.
Þingflokkurinn mótmælir stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í morgun.
„Brýna nauðsyn bar til að lækka stýrivexti til þess að vinna gegn atvinnuleysi og styrkja grundvöll framleiðslufyrirtækjanna. Með hækkun stýrivaxta er unnið gegn framfarasókn og endurreisn íslensks atvinnulífs," segir í ályktun þingflokksins.