Norrænar frændþjóðir hfa sameinast um að aðstoða Ísland vegna fjármálakreppunnar norrænu samstarfsráðherrarnir samþykktu í dag aðgerðir til að koma Íslandi til aðstoðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaráði.

Á fundi norrænu ráðherranna sem haldinn var í Kaupmannahöfn í dag, lögðu þeir áherslu á að sérlega mikilvægt væri að tryggja að meðal annars íslenska fræðasamfélagið og íslensk ungmenni gætu áfram verið virk í norrænu samstarfi.

Þá kemur fram að ráðherrarnir hafa beðið Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, um að vinna tillögu að aðgerðum. Þær eiga, samkvæmt áætlun, að leggja fyrir samstarfsráðherrafund í byrjun mars á næsta ári.

Norrænar þjóðir hafa þegar sýnt stuðning sinn við Íslendinga með aðstoð við að afla lána hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

„En við teljum þörf á frekari aðgerðum til að styðja við Ísland vegna þess erfiða ástands sem skapast hefur“, segja ráðherrarnir í tilkynningu.

Cristina Husmark Pehrsson samstarfs- og félagsmálaráðherra Svía stýrði fundi norrænu samstarsráðherranna. Svíar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári.