Fróði Steingrímsson lögmaður hefur gengið til liðs við Frumtak. Hann mun sinna lögfræðilegum málefnum fyrir félagið og taka þátt í þróun á starfsemi þess. Þá mun hann veita félögum í eignasafni Frumtakssjóðanna ráðgjöf og stuðning.

„Fróði hefur víðtæka reynslu af lögmennsku, einkum á sviði félaga-, samninga- og hugverkaréttar. Hann hefur annast lögmannsstörf á flestum sviðum viðskiptalífsins, þ.m.t. veitt fjölda nýsköpunarfyrirtækja ráðgjöf, bæði á íslenskum og erlendum vettvangi,“ segir í fréttatilkynningu.

Fróði hefur meðal annars starfað hjá Vík lögmannsstofu, CCP og Símanum í gegnum tíðina. Hann er með meistaragráðu í lögum (LL.M.) frá Columbia University í New York og kandidatspróf frá Háskóla Íslands auk réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Þá er hann er aðjúnkt við Háskólann á Bifröst þar sem hann hefur m.a. annast kennslu í eigna- og veðrétti og kaupum og sölu fyrirtækja. Auk þess hefur Fróði verið stundakennari í félagarétti við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík og í samningarétti við lagadeild Háskóla Íslands.

Fróði Steingrímsson:

„Ég hef lengi verið viðloðandi tækni- og nýsköpunargeirann í starfi og fundist afskaplega gefandi að starfa fyrir aðila sem eru að skapa ný tækifæri og stækka. Ég er ákaflega þakklátur fyrir að fá núna tækifæri til að einbeita mér enn frekar að slíkum störfum og vinna með fagfólki sem brennur fyrir sömu málum.“

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks:

„Fróði er frábær viðbót við Frumtaksteymið og við bjóðum hann hjartanlega velkominn til starfa. Hann er með mikla reynslu sem kemur að góðum notum við áframhaldandi uppbyggingu og þróun á starfsemi okkar. Við leggjum höfuðáherslu á traust samstarf og stuðning við fyrirtækin í eignasafninu og þar mun Fróði líka gegna lykilhlutverki.“