„Nú er þetta ekki ætlað til þess að koma til móts við þann hóp sem glímir við mestan vanda, það er nefnilega á misskilningi byggt. Aðgerðir til þess eru annars eðlis. Þetta eru svokallaðar almennar aðgerðir til leiðréttingar á forsendubresti sem allur almenningur varð fyrir,“ segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins, spurður út í gagnrýni Seðlabanka Íslands á almennar niðurfærslur lána. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.
Frosti segir að miklar breytingar hafi orðið á öllum forsendum í kerfinu fyrir lántaka og sé litið svo á að skuldari eigi að taka allta á sig. „Við viljum segja að hann tekur þetta náttúrlega á sig upp að einhverju marki en eins og í öllum samningum þegar verður forsendubrestur með þessum hætti og svona gríðarlegar breytingar frá því sem menn bjuggust við, þá er rétt að báðir aðilar beri það sameiginlega sem er utan við einhverjar eðlilegar væntingar,“ segir Frosti.