Føroya Banki P/F verður aðili að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar 15. júní, segir í tilkynningu Kauphallarinnar.

Auðkenni Føroya Banki í viðskiptakerfinu er FOB.

?Við bjóðum Føroya Banki velkominn. Bankinn er annar færeyski aðilinn til að fá heimild til viðskipta í Kauphöllinni. Væntum við að aðild hans efli viðskipti með færeysk verðbréf í Kauphöllinni," segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, í tilkynningunni.