Nafn færeyska bankans Føroya Banki mun í dag breytast í BankNordik en bankinn tilkynnti um þessa breytingu í lok mars.

Nýtt nafn verður virkt í viðskiptakerfi Kauphallarinnar þann 23. apríl nk. Á sama tíma verður auðkenni tilboðabókar hlutabréfa félagsins breytt úr FO-BANK í BNORDIK.

Føroya Banki er sem kunnugt er skráður í Kauphöllina hér á landi og er eitt þeirra sex félaga sem mynda úrvalsvísitöluna OMXI6.