Frumherji hf. hefur keypt allt hlutafé í bifreiðaskoðunarfyrirtækinu Aðalskoðun hf., segir í frétta tilkynningu. Kaupverðið er trúnaðarmál og kaupin eru gerð með fyrirvara um að Samkeppniseftirlitið geri ekki athugasemdir við viðskiptin. Félögin verða rekin áfram sitt í hvoru lagi með sama hætti og verið hefur.

"Með kaupunum styrkir Frumherji sig í sessi sem öflugt fyrirtæki á sviði faggildrar skoðunarstarfssemi á Íslandi. Kaupin gera jafnframt Frumherja betur í stakk búinn til að taka þátt í fjárfestingarverkefnum erlendis, en slík verkefni hafa verið til skoðunar hjá félaginu," segir í tilkynningunni.

Frumherji hf. var stofnaður árið 1997. Stefna félagsins er að vera leiðandi aðili á sviði faggildrar skoðunarstarfssemi á Íslandi. Nú kemur um helmingur tekna félagsins af bifreiðaskoðunarstarfsemi og afgangurinn frá annarri faggildri skoðanastarfssemi eins og löggildingu mælitækja, rafmagnseftirliti, reglubundnu eftirliti sjávarútvegsfyrirtækja og skipaskoðunum. Fyrirtækið starfar einnig á öðrum sviðum. Starfsmenn Frumherja eru um 100 á 28 skoðunarstöðvum um land allt.

Aðalskoðun var stofnuð árið 1995 af nokkrum einstaklingum sem jafnframt hafa verið starfsmenn félagsins allar götur síðan. Félagið starfar fyrst og fremst á bifreiðarskoðunarsviðinu en einnig er á þess vegum starfssemi á rafmagnssviði og sjávarútvegssviði. Starfsmenn Aðalskoðunar eru um 20.

Framkvæmdastjóri Frumherja hf. er Orri Hlöðversson og framkvæmdastjóri Aðalskoðunar hf. er Bergur Helgason.