Ólafur Ólafsson og Guðmundur Hjaltason, stjórnarmenn í SÍF hf., hafa bætt við sig í félaginu samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar. Þeir kaupa í nafni Fjárfestingafélagsins Vendingar 22.000.000 hluti á genginu 4,566. Um er að ræða átta viðskipti innan dagsins og er verðið 4,566 meðalverð í viðskiptunum.

Ólafur Ólafsson, stjórnarmaður í Fjárfestingafélaginu Vendingu ehf., er jafnframt fruminnherji í SÍF (stjórnarformaður). Guðmundur Hjaltason er framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins Vendingar ehf. og fruminnherji (stjórnarmaður) í SÍF. Hlutur fjárhagslegs tengdra aðila Ólafs Ólafssonar eftir viðskiptin er 1.933.670.487. Hlutur fjárhagslegs tengdra aðila Guðmundar Hjaltasonar eftir viðskiptin er 1.709.211.397.