Samtök iðnaðarins segja að áfengisfrumvarp sem bíður nú annarrar umræðu veiki stöðu innlendra bjórframleiðenda.

Samtökin segja að ef heimilt verði að selja áfengan bjór í búðum, eins og stefnt er að í frumvarpinu, þá styrki það erlend vörumerki frekar en innlend því þau erlendu hafi forskot vegna heimildar til að auglýsa vörur sínar í fjölmiðlum sem berast til landsins. Innlendir aðilar hafi ekki sömu möguleika á að kynna sínar vörur, en það gæti leitt til verulegs ójarnræðis og þannig veikt stöðu innlendra framleiðenda.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir samtökin vilja stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi framleiðenda enda sé það allra hagur að hér dafni blómlegur iðnaðar.

„Við viljum að þeir fjölmörgu gestir sem heimsækja landið eigi þess kost að gæða sér á innlendri framleiðslu. Því er mikilvægt að hugað sé að því að innlendir framleiðendur áfengra drykkja hafi sömu möguleika og erlendir framleiðendur að koma vörum sínum á framfæri. Þá má ekki gleyma því að innlend framleiðsla skilur eftir sig meiri virðisauka fyrir samfélagið en innflutningur gerir.

Nú þegar frumvarpið hefur verið afgreitt úr allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis viljum við beina því til þingmanna að hafa í huga hvaða afleiðingar frumvarpið gæti haft á innlenda framleiðslu ef innlendir framleiðendur geta ekki keppt á jafnræðisgrunni áfram. Ef um er að ræða vörur sem keppa á frjálsum markaði verður að fylgja því frelsi til að kynna vörurnar. Til að veikja ekki stöðu innlendra framleiðenda er því nauðsynlegt að greina betur áhrifin af þeim lagabreytingum sem felast í frumvarpinu. Við höfum bent allsherjar- og menntamálanefnd á þetta með skýrum hætti og þess vegna kemur það á óvart að málið sé afgreitt úr nefnd án þess að meiri greining fari fram.“