Frumvarp til lagabreytinga til þess að greiða fyrir útflutningi bíla frá landinu og til Evrópulanda, verður væntanlega lagt fyrir ríkisstjórnina í dag, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Nokkur eftirvænting er í bílgreininni vegna málsins en hagsmunaaðilar hafa talið brýnt að fá lögum breytt til þess að greiða fyrir útflutningi á þeim miklu umframbirgðum af bílum sem nú eru til í landinu.